Byrjaðu hér
Þrír tenglar duga flestum
Alþjóðlegu samtökin
Workaholics Anonymous World Service Organization
WA varð til í Bandaríkjunum snemma á níunda áratugnum og telur nú hópa í tugum landa. Íslenski hópurinn er skráður hjá þeim eins og aðrir hópar, en starfar sjálfstætt — eins og allir WA-hópar gera.
- workaholics-anonymous.org Aðalvefurinn
- Am I a Workaholic? Sjálfspróf á ensku
- Information for Newcomers Fyrir nýliða
- Fundaskráin — netfundir Öll tímabelti, leitarvél
- Fundaskráin — allir fundir Líka staðfundir
- Lesefni WA Flest ókeypis á vefnum
- Ársþing WA Á netinu 24.–27. september 2026
- International Connections Hópar eftir löndum
- Að stofna nýjan WA-hóp Leiðbeiningar
Önnur tungumál
Ef enskan er fyrirstaða
Lesefni WA er til á fleiri tungumálum en ensku og íslensku, og netfundir eru haldnir á spænsku, frönsku, þýsku, rússnesku og fleiri málum. Þeir eru allir í fundaskránni.
Um þessa síðu
Eldri vefurinn og prentefnið
- vinnufiklar.wordpress.com Eldri vefur hópsins
- Prentefni til að hengja upp Plaköt · bæklingur · nafnspjald
- [email protected] Við svörum öllum
Þessi síða fylgist ekki með þér.
Hér eru engar mælingar, engar vefkökur, engin skráning og ekkert efni sótt frá öðrum vefjum. Ekkert sem þú gerir hér er sent neitt — þess vegna er heldur ekkert til að samþykkja. Það á líka við um sjálfsprófið: svörin fara hvergi.
Tenglar héðan fara á aðra vefi sem hafa sínar eigin reglur. Vefur alþjóðlegu samtakanna notar til dæmis mælingar eins og flestir vefir gera.
Utan WA
Af hverju listinn er ekki lengri
Erfðavenjur WA segja að samtökin tengist ekki utanaðkomandi félögum, stofnunum, meðferðaraðilum eða trúfélögum og taki ekki afstöðu til utanaðkomandi mála. Þess vegna mælum við hvorki með né gegn öðrum úrræðum og listum þau ekki upp hér, þótt mörg okkar nýti þau samhliða.
Ef þig vantar heilbrigðisþjónustu, ráðgjöf eða starfsendurhæfingu er heilsugæslan eða stéttarfélagið þitt rétti staðurinn til að byrja.
Ef þér líður mjög illa núna
Hringdu í 112 ef líf liggur við. Hjálparsími Rauða krossins er 1717, opinn allan sólarhringinn og gjaldfrjáls, og netspjall er á 1717.is.
Þetta er ekki á vegum WA. Við bendum á það vegna þess að fundur á þriðjudaginn er ekki alltaf nógu fljótt.