Næsti fundur Mæta á netinu

12 spora samtök vinnufíkla á Íslandi

Er ég vinnufíkill?

Enginn getur svarað því fyrir þig — hvorki við, læknir né próf á netinu. En það má þrengja spurninguna.

Spurningarnar tuttugu

Merktu við þær sem þú svarar játandi.

Enginn sér svörin nema þú. Þau eru hvorki send né vistuð og hverfa um leið og þú lokar síðunni.

Þrjú eða fleiri játandi svör benda til þess að vinnufíkn geti verið til staðar.

Eftir að hafa íhugað spurningarnar vandlega — og jafnvel rætt þær við fjölskyldu og vini — verður myndin oft skýrari. Flest okkar voru lengi að átta okkur á því hversu miklum skaða hegðunin hafði valdið. Batinn hófst þegar við þekktum mynstrið okkar sem hluta af öflugri fíkn sem við réðum ekki við af eigin rammleik. Vitund og viðurkenning opna dyrnar að lausnum.

Spurningarnar tuttugu eru lesefni Workaholics Anonymous (Book of Recovery, 2. útgáfa 2015, bls. 2–3). Íslenska þýðingin er okkar og hefur ekki verið samþykkt af alþjóðlegu samtökunum — frumtextinn er á ensku. Þetta er ekki greiningarpróf og enginn getur sagt þér að þú sért vinnufíkill. Aðeins þú getur svarað því — og þú þarft ekki að vera viss til að mæta á fund.

Eina skilyrðið fyrir aðild er löngun til að hætta að vinna í þráhyggju.

Ekki greining, ekki tilvísun, ekki ákveðinn fjöldi vinnustunda. Ekki heldur að þú hafir ákveðið neitt. Löngunin ein dugar — og hún má vera ansi óviss.

Birtingarmyndir

Þetta lítur ekki eins út hjá öllum

Fólk kemur á sinn fyrsta fund úr ólíkum áttum. Þessar fjórar eru algengastar hjá okkur.

Álag og kulnun

Þú keyrðir á fullu þangað til líkaminn eða hausinn sagði stopp. Kannski ertu í veikindaleyfi eða starfsendurhæfingu núna. Hvíldin hjálpar — en spurningin sem eftir stendur er hvað gerist þegar þú byrjar aftur.

Fullkomnunarárátta

Verkið er aldrei alveg tilbúið. Þú lagfærir, endurskoðar og pússar löngu eftir að það var orðið nógu gott, og skilar því svo of seint eða alls ekki.

Frestunarárátta og vinnuforðun

Þú vinnur ekki mikið — þú kvíðir mikið. Vinnan er samt alltaf í huganum, alla daga, líka þegar ekkert er unnið. Í WA er þetta ekki andstæða vinnufíknar heldur hin hliðin á henni.

Ólaunuð vinna

Fíknin þarf ekki launaseðil. Hún getur beinst að náminu, húsinu, sjálfboðastarfi, félagsstörfum eða áhugamáli sem er löngu hætt að vera áhugamál og orðið að verkefnalista.

Vantar þig nákvæmari lýsingu?

Einkennin tuttugu eru annar texti en spurningarnar hér að ofan — lengri, hægari og nákvæmari. Það er sá texti sem flest okkar könnuðust fyrst við sjálf í.

Það sem fólk spyr að á þessum tímapunkti

Áður en þú ákveður nokkuð

Er munur á vinnufíkn og kulnun?
Já. Kulnun er ástand — tankurinn er tómur. Vinnufíkn er mynstur sem kemur fólki þangað aftur og aftur. Hægt er að kulna án þess að vera vinnufíkill og hægt er að vera vinnufíkill án þess að hafa kulnað enn. Þær fylgjast samt oft að, og mörg okkar áttuðu sig á mynstrinu fyrst eftir að hafa keyrt sig út.
Þarf ég að vera viss um að ég sé vinnufíkill til að mæta á fund?
Nei. Eina skilyrðið fyrir aðild að WA er löngun til að hætta að vinna í þráhyggju. Enginn spyr hvort þetta sé orðið nógu alvarlegt og enginn greinir þig. Mörg okkar mættu fyrst til að útiloka málið og sátu svo áfram.
Ég er ekki í launaðri vinnu. Getur það samt átt við mig?
Já. Vinnufíkn snýst ekki um launaseðil. Hún getur beinst að námi, sjálfboðastarfi, heimilinu, viðhaldsverkefnum eða áhugamáli sem er löngu hætt að vera skemmtilegt.
Ég vinn ekki mikið — ég fresta öllu. Er það líka vinnufíkn?
Það getur verið. Frestunarárátta og vinnuforðun eru þekkt birtingarform í WA og eiga sinn eigin fund í alþjóðlegu fundaskránni. Þau eru hin hliðin á sama peningi: vinnan er alltaf í huganum, en verkin fara samt ekki fram.
Ég er bara undir miklu álagi í smá tíma. Þarf ég þetta?
Kannski ekki. Álagstímabil eiga sér upphaf og endi og eru hluti af flestum störfum. Það sem við könnumst við er þegar tímabilið endar aldrei — eða þegar það endar og næsta byrjar strax. Ef þú ert í vafa kostar einn fundur þig klukkutíma.
Skuldbind ég mig með því að mæta?
Nei. Þú skráir þig ekki, gefur ekki upp eftirnafn og enginn hringir í þig eftir á. Þú mátt mæta einu sinni og aldrei aftur, og það er fullkomlega í lagi.
Kemur þetta í staðinn fyrir sálfræðing eða lækni?
Nei. Við erum ekki fagfólk, greinum ekki og meðhöndlum ekki. Mörg okkar nýta fagfólk samhliða WA og það er ekkert því til fyrirstöðu — hvorugt útilokar hitt.

Næsta skref

Það er einn fundur í viku og hann kostar ekkert

Næsti fundur
—
Á staðnum
Gula húsið, Tjarnargötu 20, 101 Reykjavík — Salur B á neðri hæð.
Á netinu
Sami fundur, sami tími. meet.google.com/uyh-agcs-rci — þú mátt hafa myndavélina slökkta.
Ef þriðjudagar ganga ekki
Erlendir netfundir á íslenskum tíma, nánast alla daga vikunnar.